Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja af Cambridge voru í opinberri heimsókn í París á dögunum. Katrín vakti athygli fyrir fallegan fatnað og var með nýtt dress í töskunni fyrir hvert tilefni samkvæmt E! Online.
Katrín kann að velja fallegar kápur og hún mætti til Parísar á föstudaginn í fallegri grænni kápu frá Cethrine Walker. Græni liturinn varð eflaust fyrir valinu vegna þess að á föstudaginn var dagur heilags Patreks.
Þegar Katrín mætti í breska sendiráðið í París var hún klædd fallegum svörtum Alexander McQueen-kjól.
Seinna um kvöldið voru allra augu á Katrínu þegar hún klæddist glæsilegum sérsniðnum síðkjól frá Jenny Peckham.
Á öðrum degi heimsóknarinnar var Katrín klædd tweed-kjól frá Chanel.
Hún mætti síðan í fagurrauðri kápu frá Corolinu Herrera þegar Frakkland og Wales áttust við í ruðningi. Undir kápunni var hún í svörtum rúllukragabol.