Á morgun mun INKLAW í samvinnu við Cintamani kynna nýja vörulínu, INKLAW X Cintamani. Nýja línan verður kynnt í Cintamani-versluninni við Bankastræti 7. Þetta er ekki fyrsta línan sem INKLAW gerir í samstarfi við aðra því í síðustu viku sagði Smartland frá því að INKLAW hefði gert línu í samvinnu við IKEA.
En hvers vegna er INKLAW að vinna með Cintamani? Jú, vegna þess að fatamerkin kynntust á Reykjavík Fashion Festival.
„Samtal hófst í kjölfar þátttökunnar og fljótlega fóru Cintamani og INKLAW að skiptast á hugmyndum og þekkingu auk þess sem að INKLAW opnuðu svokallaða pop-up-verslun í Bankastrætinu og fengu þar með tækifæri til þess að selja vörur sínar í fyrsta skipti í raunheimum en merkið hefur eingöngu nýtt sér netið til þess að selja vörur sínar fram til þessa,“ segir í fréttatilkynningu frá INKLAW og Cintamani.
Flíkur INKLAW eru handgerðar og mynstrin handmáluð með málningu. Línan verður kynnt í verslun Cintamani á morgun.