Óbeinar auglýsingar á bloggum og Instagram hafa verið sífellt vinsælli erlendis síðustu ár. Litla Ísland hefur ekki farið varhluta af auglýsingum hjá bloggurum og Instagram-notendum sem fá borgað fyrir að auglýsa vörur eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku.
Guardian segir í grein sinni um auglýsingar á samfélagsmiðlum frá hinni þrítugu Chiaru Ferragni sem var tískubloggari og laganemi fyrir sjö árum. Í dag býr hún í rúmlega þrjú hundruð milljóna króna einbýlishúsi í Los Angeles og enn ekki orðin lögfræðingur. Hvernig hefur hún efni á því? Jú hún vinnur við það að setja myndir af sér í merkjavörum á netið. Ferragni er fyrirmynd margra þeirra sem vilja feta í sömu fótspor og hún enda hefur hún náð gríðarlegum vinsældum fyrir það að auglýsa vörur. En hún er með um níu og hálfa milljón fylgjenda á Instagram.
Ferragni er í raun orðin frekar gömul í þessum heimi en það er ungt fólk að koma fram sem hefur nánast alist upp í þessum heimi. Til að mynda hin 17 ára Amanda Steele en henni var flogið til Cannes til að vera viðstödd frumsýningu kvikmyndarinnar Okja. Í staðinn birti hún mynd af sér á Instagram þar sem hún þakkar Dior-snyrtivörufyrirtækinu fyrir að koma fram við hana eins og prinsessu.
Til eru umboðsskrifstofur fyrir þessa áhrifavalda og taka þær ákveðna prósentu af laununum. Þær hjálpa líka til við að móta stíl áhrifavaldanna en sumir auglýsa alls kyns merki á meðan sumir eru með ákveðinn stíl og enn aðrir sem vinna lengi með sama aðilanum.