Ofurfyrirsætan Naomi Campbell verður aðalnúmerið í haustherferð sænska tískurisans H&M fyrir Fall fashion-línuna.
Glamúrinn verur allsráðandi í þessari haustlínu og verður þemað „power dressing“. Vel sniðnir blazer-jakkar eru áberandi við þröng pils og kvenlegar skyrtur. Er þessu öllu blandað saman við grófar prjónapeysur, kjóla úr glansefni og fleira í þeim dúr.
Í kynningarmyndbandi línunnar má sjá hina glæsilegu Naomi Campbell sem tekur okkur með út á næturlífið í Tókýó þar sem tískulegar týpur mála bæinn rauðan.
„Tókýó er klárlega ein af mínum uppáhaldsborgum. Í tökunum klæddist ég dökkri tvíhnepptri buxnadragt sem er án efa ein af mínum uppáhaldsflíkum úr haustlínunni. Ég myndi sjálf klæðast dragtinni á svipaðan hátt og ég var í myndbandinu, alveg hneppt upp en samt sést í smá húð svo það myndast skemmtilegt jafnvægi af kvenlega og karllæga stílnum,“ segir Campbell.
Fall Fashion-línan verður fáanleg í verslunum frá og með 21. september næstkomandi.