Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, var glæsileg til fara í gær þegar nýja ríkisstjórnin var kynnt. Hún klæddist danskri hönnun. Um er að ræða svartan vel sniðinn kjól með beinu hálsmáli og kvartermum. Kjóllinn er skreyttur með grænum bryddingum á ermum og á axlastykki, aðsniðinn og lekker.
Johanne Helger Lund er danskur fatahönnuður og eigandi merkisins Ecouture. Hún leggur áherslu á kvenlegar línur og mikið er gert úr mittislínunni. Hún sækir augljóslega innblástur í fimmta og sjötta áratuginn og er hugsað út í hvert einasta smáatriði. Þegar heimasíða Ecouture er skoðuð kemur í ljós að kjólarnir, pilsin og skyrturnar eru ákaflega eiguleg og falleg.