Brynja Dan markaðsstjóri S4S tók Kim Kardashian á þetta á dögunum og ákvað að lita á sér hárið ljóst. Til þess að hægt væri að lita hárið á Brynju á tveimur dögum, ekki mörgum mánuðum, notaði Silla á hárgreiðslustofunni Hárbeitt, efnið Olaplex í hárið á Brynju.
„Olaplex er tímamótaefni sem byggir hárið upp innan frá meðan á efnameðferð stendur. Efnið er byltingarkennt nýtt efni sem fremst hársnyrtifólk heims lofar í hástert,“ segir Jakob Garðarsson hjá heildversluninni Ison sem flytur efnið inn.
„Hárið verður heilbrigt á ný en Olaplex inniheldur virkt efni sem er hannað til að endurtengja
disulfide tengin sem skemmast við háralitun, aflitun eða permanent.“