Grönholm tekur forustuna í Frakklandsrallinu

Marcus Grönholm.
Marcus Grönholm. AP

Finninn Marcus Grönholm, sem ekur Ford Focus, hefur tekið forustuna í Frakklandsrallinu eftir þrjár sérleiðir. Grönholm hefur 2,9 sekúndna forskot á Spánverjann Dani Sordo, sem ekur Citroën C4, og 4,1 sekúndu forskot á Frakkann Sébastien Loeb, sem einnig ekur Citroën. Þeir Grönholm og Loeb eru að berjast um heimsmeistaratitil rallökumanna í ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert