Sex rauð spjöld í leikjum dagsins

Stefán Þórðarson sá sitt annað rauða spjald í sumar í …
Stefán Þórðarson sá sitt annað rauða spjald í sumar í leik Skagamanna og HK í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Rauða spjaldið fór sex sinnum á loft í leikjum dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Grindvíkingar enduðu leik sinn gegn Fram þremur færri, en þeir Marinko Skaricic, Zoran Stamenic og Scott Ramsay fengu reisupassann í liði Grindavíkur í dag. Þrátt fyrir það fór liðið með 1:0 sigur af hólmi en mark Grindavíkur skoraði Ramsey úr vítaspyrnu. Bæði lið höfðu þá áður klikkað á einni vítaspyrnu hvort.

Stefán Þórðarson í liði ÍA fékk einnig rautt spjald í leik ÍA og HK á Kópavogsvelli. Var þetta í annað skipti í sumar sem Stefán fær að sjá rautt og verður hann því líklega settur í tveggja leikja bann.

Þá fékk Davíð Þór Viðarsson rautt í liði FH í leik Hafnarfjarðarliðsins gegn Fjölni og Atli Sveinn Þórarinsson fauk útaf hjá Val í leik þeirra gegn Breiðablik. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert