Valsmenn sömdu við König

Danni König leikur með Val í sumar.
Danni König leikur með Val í sumar. www.randersfc.dk

Valsmenn hafa samið við danska sóknarmanninn Danni König og mun hann leika með Hlíðarendaliðinu í sumar. König hefur verið til reynslu hjá Val síðustu daga og lék æfingaleik með liðinu gegn Þrótti. Í kjölfarið var honum boðinn samningur.

König er 23 ára gamall og kemur til Valsmanna frá danska úrvalsdeildarliðinu Randers. Hann kom til Randers frá Brönshöj síðasta sumar og hefur spilað 10 leiki með aðalliði Randers en ekki náð að skora mark.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert