Kjartan Henry til skoðunar hjá Brighton

Henry Finnbogason í leik KR gegn Breiðabliki.
Henry Finnbogason í leik KR gegn Breiðabliki. mbl.is/Ómar Óskarsson

KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason er við æfingar hjá enska B-deildarliðinu Brighton að því er fram kemur á netmiðlinum fótbolti.net. Kjartan, sem átti frábært tímabil með Íslands- og bikarmeisturunum í sumar, hefur ekki farið leynt með það að hann stefnir á að komast aftur út í atvinnumennsku og á dögunum var hann til reynslu hjá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland.

Brighton er í 13. sæti í B-deildinni en knattspyrnustjóri liðsins er Úrúgvæinn Gustavo Poyet sem um tíma var á mála hjá Chelsea.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert