Finnur samdi við Fylkismenn

Finnur Ólafsson í leik með ÍBV gegn Stjörnunni.
Finnur Ólafsson í leik með ÍBV gegn Stjörnunni. mbl.is

Finnur Ólafsson skrifaði í hádeginu undir samning til þriggja ára við knattspyrnudeild Fylkis en hann kemur til Árbæjarfélagsins frá ÍBV. Frá þessu er greint á Fótbolta.net.

Finnur er 27 ára gamall miðjumaður og lék allan sinn feril með HK þar til hann gekk til liðs við ÍBV fyrir tveimur árum. Hann hefur verið í lykilhlutverki á miðjunni hjá Eyjamönnum og lék 36 leiki með þeim í úrvalsdeildinni. Áður hafði hann spilað 31 leik með HK í deildinni árin 2007 og 2008.

Finnur átti eitt ár eftir af samningi sínum við Eyjamenn. Fylkismenn gerðu ÍBV tilboð í hann og félögin náðu samkomulagi um félagaskiptin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert