Kjartan og Haukur úr leik hjá KR

Kjartan Henry og félagar urðu bikarmeistarar í ágúst.
Kjartan Henry og félagar urðu bikarmeistarar í ágúst. mbl.is

KR hefur misst tvo sterka leikmenn fyrir lokasprettinn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Kjartan Henry Finnbogason og Haukur Heiðar Hauksson gengust báðir undir aðgerð á hné í gær og verða frá keppni næstu mánuðina.

Frá þessu er greint á vef fótbolta.net. Þar segir að báðir leikmenn hafi glímt við brjóskskemmdir í hnénu.

KR á sáralitla von um að verja Íslandsmeistaratitil sinn en liðið er tíu stigum á eftir FH þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið er tveimur stigum á undan Stjörnunni sem er í 3. sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert