Heimir: Sanngjarnt að fara áfram

„Ég er gríðarlega ánægður með að komast áfram og mér fannst þetta ágætis leikur hjá FH. Unnum 2:0 og héldum markinu hreinu. Við lögðum upp með það í leiknum að fá ekki á okkur mark, því við vissum það að þeir þyrftu mark,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 2:0-sigur liðsins á hvítrússneska liðinu Neman Grodno í 2. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu í kvöld.

Með sigrinum er FH komið áfram í 3. umferðina eftir að hafa unnið Neman Grodno samanlagt, 3:1 og mætir sænska liðinu Elfsborg í næstu umferð.

„Mér finnst við fara sanngjarnt áfram og við spiluðum fannst mér frábæran leik úti í Hvíta-Rússlandi og vorum betri þar heldur en í þessum leik í kvöld,“ sagði Heimir meðal annars.

Viðtalið við Heimi Guðjónsson má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert