Sveinn Elías: Höfum gert okkur þetta sjálfir

Sveinn Elías Jónsson var skiljanlega ósáttur þegar blaðamaður tók hann tali eftir 4:1-tap gegn Fjölni í Pepsi-deildinni í kvöld.

„Þetta var einmitt andstæðan við það sem við ætluðum okkur. Við lögðum leikinn svolítið upp eins og bikarúrslitaleik og með það til hliðsjónar eru Fjölnismenn bikarmeistarar,“ sagði Sveinn Elías við mbl.is og segir framhaldið sáraeinfalt hjá Þórsurum.

„Það er bara að næla sér í stig og koma sér úr fallsætinu. Við höfum spilað þetta upp í hendurnar á okkur sjálfir að vera í fallbaráttu í sumar, það er okkar hlutskipti. Nú er bara að berjast og við ætlum að gera allt hvað við getum til að sleppa við fallið,“ sagði Sveinn Elías, en nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndskeiði þar sem hann talar meðal annars um bakvarðarkrísu liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert