Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV var ekki sáttur með 1:1 jafnteflið gegn Breiðabliki á Hásteinsvelli í dag.
„Mér fannst við vera mun betri aðilinn í leiknum og við vildum fá þrjú stig, vorum komnir yfir og vorum svekktir að fá á okkur ódýrt jöfnunarmark. En við dekkuðum ekki nógu vel og eltum ekki mennina okkar eftir aukaspyrnu, rétt eins og í síðasta leik. Því fór sem fór, eitt stig.“