Topplið FH og ríkjandi Íslandsmeistarar KR skildu jöfn, 1:1, í hörkuleik í Kaplakrika í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, þar sem bæði mörkin voru skoruð í seinni hálfleik.
Atli Guðnason kom FH-ingum yfir með skoti af stuttu færi á 65. mínútu leiksins en framherjinn Gary Martin jafnaði metin með hörkuskoti á 83. mínútu og þar sat.
Eftir úrslitin í kvöld eru FH og Stjarnan efst og jöfn að stigum með 45 stig eftir 19 leiki en markatala FH-ingana er betri. KR-ingar eru í þriðja sætinu með 36 stig og möguleikar þeirra á að verja Íslandsmeistaratitlinn eru nú úr sögunni.
FH | 1:1 | KR | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Uppbótartíminn eru 4 mínútur. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |