Gylfi: Fannst við aldrei komast í gang

Gylfi Þór Sigurðsson var niðurlútur þegar hann ræddi við fjölmiðlamenn í Tékklandi í kvöld þar sem Tékkland sigraði Ísland 2:1 í undankeppni EM í knattspyrnu. 

„Þetta var mjög svekkjandi. Mér fannst við aldrei komast í gang,“ sagði Gylfi meðal annars eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði.

Gylfi sagði íslenska liðið aldrei hafa náð almennilegu spili fyrir utan kannski fimm mínútna kafla.

Varðandi mörkin sem Ísland fékk á sig þá sagði Gylfi að alltaf kæmi að því að menn gerðu mistök í fótboltaleikjum á móti góðum liðum og benti á að allir hefðu verið frábærir í vörninni fram til þessa í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert