Guðjón Árni Antoníusson einn reyndasti maður Keflvíkinga fór ekki leynt með þá skoðun sína að frammistaða Keflavíkinga hafi verið slök í kvöld þegar Mbl.is tók hann tali. Guðjón talaði um gjaldþrot að þessu sinni en Fylkir vann Keflavík 3:1 í Reykjanesbæ í kvöld.
„Við vorum hrikalega daprir í dag,“ sagði Guðjón meðal annars en viðtalið við hann má sjá í heild sinni á meðfylgjandi myndskeiði.
Sjálfur lenti Guðjón í vandræðum á sínum ferli vegna höfuðáverka en virðist nú hafa jafnað sig og er í nýju hlutverki á miðjunni hjá Keflavík eftir að hann snéri heim frá FH.
„Gaman að vera kominn aftur í slaginn. Öðruvísi en áður en gaman. Ég vil bara einhvers staðar þar sem ég get hjálpað liðinu en það var erfitt í dag,“ sagði Guðjón Árni.