Farid genginn í raðir Keflvíkinga

Farid Zato í leik með KR.
Farid Zato í leik með KR. mbl.is/Eggert

Farid Zato, landsliðsmaður Tógó í knatt­spyrnu sem lék með KR á síðasta tíma­bili, er genginn í raðir Keflavíkur samkvæmt áreiðanlegum heimildum mbl.is.

Samningur Zato við Keflvíkinga gildir út tímabilið en hann lék nokkra leiki með Kára í 3.deildinni í sumar. Farid, sem lék áður með Vík­ingi í Ólafs­vík og HK og með 2. flokki FH, var frá vegna meiðsla í nokkra mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyr­ir á landsliðsæfingu í Tógó í vet­ur og á dög­un­um og í byrjun maí var hann leystur und­an samn­ingi hjá KR. Hann kom við sögu í 16 leikjum KR í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.

Farid, sem er 23 ára gamall, er annar leikmaðurinn sem Keflvíkingar fá til liðs við á skömmum tíma en bandaríski framherjinn Chukwudi Chij­indu er genginn í raðir félagsins og fékk leikheimild með liðinu í dag. Þessir tveir sterku leikmenn ættu að geta styrkt Keflavíkur-liðið og ekki veitir af því það vermir botnsætið í Pepsi-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert