Aftur á leið til útlanda

Kristinn Jónsson
Kristinn Jónsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

„Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu og ég lít á hana sem viðurkenningu fyrir spilamennsku alls liðsins í sumar og mín sjálfs,“ sagði bakvörðurinn Kristinn Jónsson úr Breiðabliki við Morgunblaðið eftir að hafa tekið á móti fallegum bikar sem hann fékk afhentan fyrir að vera útnefndur besti leikmaður Pepsí-deildarinnar af Morgunblaðinu en hann hlaut flest M í einkunnargjöf blaðsins.

„Þetta er klárlega mitt besta tímabil frá upphafi. Mér hefur tekist að vera mjög stöðugur allt tímabilið. Ég hef aldrei upplifað jafn góða stemningu hjá Breiðabliki og í ár og við erum eins og stór fjölskylda,“ sagði Kristinn, sem er 25 ára gamall, og sneri aftur til Blikanna fyrir tímabilið eftir að hafa spilað eitt tímabil sem lánsmaður með sænska liðinu Brommapojkarna. Kristinn fór mikinn með Kópavogsliðinu en hann átti tíðar ferðir upp vinstri kantinn og lagði ófá mörkin upp fyrir félaga sína og skoraði sjálfur tvö mörk en Blikarnir töpuðu aðeins tveimur leikjum í deildinni og enduðu í öðru sæti deildarinnar.

Spurður hverju hann þakki frábært tímabil sitt sagði Kristinn;

„Ég lagði mikið á mig í vetur og svo hef ég hrikalega mikið af góðu fólki í kringum mig. Ég gerði marga hluti öðruvísi í ár heldur en síðastliðin ár og það hjálpaði greinilega mikið til. Til dæmis hjálpaði Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari mér mjög mikið og sjúkraþjálfun hjá okkur Blikunum hélt okkur að mestu heilum í sumar. Það hefur aldrei verið jafn lítið um meiðsli hjá okkur og í ár.“

Sjá allt viðtalið við Kristin í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert