Tilbúinn til að hjálpa þjálfaranum

Víkingur úr Reykjavík hafnaði í níunda sæti Pepsi-deildar karla í fyrra en það voru nokkur vonbrigði eftir óvænta framgöngu liðsins sumarið 2014 þegar það endaði í fjórða sætinu og tryggði sér sæti í undankeppni Evrópudeildar UEFA.

Viktor Bjarki Arnarsson fyrirliði er bjartsýnn á gott gengi í sumar. Hann telur breiddina í hópnum vera mikla og það sé byr með Víkingum um þessar mundir.

Fannar Sveinsson stuðningsmaður Víkings telur sjálfan sig vera með góðan leikskilning eftir að hafa stundað FIFA-leikinn um árabil og býður þjálfaranum hvers konar aðstoð. Fannar kemur líka með mikilvæg skilaboð til stuðningsmanna félagsins en mbl.is ræddi við þá Viktor og Fannar í Víkinni.

ÍBV. - Finna vonandi gellur í Eyjum
Víkingur Ólafsvík
 - Vill að Víkingsliðin spili um nafnið .

Þróttur Reykjavík - Vinnum FH og endum í fjórða sæti.

Gary Martin hefur skorað nokkur mörk fyrir Víking á undirbúningstímabilinu.
Gary Martin hefur skorað nokkur mörk fyrir Víking á undirbúningstímabilinu. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert