Íslenska U17 ára landslið karla í knattspyrnu æfði í dag með A-landsliðinu á Laugardalsvelli.
Enn vantar allnokkra leikmenn A-landsliðsins, þá sem enn eru að spila með sínum félagsliðum, Eið Smára Guðjohnsen þar á meðal. Alls voru 10 leikmenn A-landsliðsins á æfingunni. Þá má sjá ásamt Heimi Hallgrímssyni og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfurum Íslands, og U17 ára landsliðinu á meðfylgjandi mynd.