Víkingar frá Ólafsvík hafa gengið frá samningi við annan spænskan knattspyrnumann í dag en varnarmaðurinn Nacho Heras er kominn til þeirra frá spænska félaginu Plasencia.
Heras er 25 ára gamall og hefur einnig spilað með Tatabánya í Ungverjaldni og verið á mála hjá varaliðum Espanyol og Atlético Madrid.
Fyrr í dag tilkynntu Víkingar að þeir hefðu samið við spænska miðjumanninn Alonso Sánchez.