Breiðablik aðeins með tvo varamenn

Mikið vantar í lið Blika í dag.
Mikið vantar í lið Blika í dag. mbl.is/Óttar

Breiðablik er aðeins með tvo leikmenn á varamannabekk sínum í úrslitaleik deildabikars kvenna í fótbolta, en liðið mætir Val á Hlíðarenda klukkan 13.

Nokkuð er síðan nokkrir leikmenn Breiðabliks fengu leyfi til að fara í frí um páskana og er lið Breiðabliks því fámennt í dag.

Vantar leikmenn á borð við Jakobínu Hjörvarsdóttur, Barbáru Sól Gísladóttur, Önnu Nurmi og Líf Joostdóttur van Bemmel.

Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert