Kyssir nú karlmann

Casillas stöðvar sókn Króata gegn marki Spánverja á EM í …
Casillas stöðvar sókn Króata gegn marki Spánverja á EM í vikunni. mbl.is/afp

Eins og frægt er orðið smellti Iker Casillas, markvörður Spánar, kossi á kærustu sína, sjónvarpskonuna Söru Carbonero, í beinni útsendingu þegar hún var að taka viðtal við hann eftir að Spánn varð heimsmeistari fyrir tveimur árum.

Hampi Spánn Evrópumeistaratitlinum annan sunnudag ætlar Casillas aftur að smella kossi á kinn en nú verður það eldri sjónvarpsmaður sem fær kossinn.

„Ef við vinnum mótið verður það fyrsta sem ég geri að kyssa þig beint á kinnina,“ sagði Casillas hlæjandi við sjónvarpsmanninn Jose Ramon De la Morena aðspurður hvort Sara fengi annan koss. Sá gamli svaraði um hæl: „Við verðum nú bara að sjá til með það hvort þú getir náð mér,“ sagði sjónvarpsmaðurinn og hlógu þeir báðir dátt. Spánn mætir Frakklandi í átta liða úrslitum í dag. tomas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

LEIKIR Í DAG - 18. MAÍ

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 18. MAÍ

Útsláttarkeppnin