Vicenter Del Bosque, þjálfari Evrópumeistara Spánar, hefur valið 23 manna landsliðshóp liðsins fyrir Evrópumótið í Frakklandi.
Ekki er pláss fyrir miðjumanninn Isco, leikmann Real Madrid, í liði Evrópumeistaranna, en Spánverjar hafa úr afar sterkum miðjumönnum að velja og á Isco ekki fast sæti í liði Madrídinga. Hector Bellerin úr Arsenal fyllir í skarð Dani Carvajals úr Real Madrid sem meiddist í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu síðastliðinn laugardag. Bellerin, sem er 21 árs, lék sinn fyrsta landsleik fyrir Spán í vináttuleik gegn Bosníu og Hersegóvínu fyrir tveimur dögum.
EM-hópur Spánverja
OFICIAL | 23 hombres para hacer realidad el sueño de una nación. ¡A POR LA RECONQUISTA! 🇪🇸💪🏻🏆 #VamosEspaña #EURO2016 pic.twitter.com/knpiLsyjLG
— Selección Española (@SeFutbol) May 31, 2016