Varnarjaxlinn Ragnar Sigurðsson er einn þeirra leikmanna sem tilnefndir eru sem besti leikmaður 16-liða úrslita EM í knattspyrnu. Hægt er að kjósa þann besta hér.
Hægt er að velja á milli eins leikmanns úr hverju liði sem komst í 16-liða úrslitin og er Ragnar fulltrúi okkar Íslendinga.
Frétt mbl.is: Öll Evrópa með augun á Ragnari
Þegar þetta er skrifað er Ragnar langefstur í kosningunni en 39% hafa greitt honum atkvæði sitt. Næstur á eftir honum kemur Frakkinn Antoine Griezmann, með 14% atkvæða.
Ragnar átti stórleik þegar Ísland vann England, 2:1, á mánudagkvöld. Hann skoraði fyrra mark okkar Íslendinga og hélt skæðum sóknarmönnum Englands niðri.