Júlíus Jónasson þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik var á jákvæðu nótunum þegar mbl.is ræddi við hann eftir síðasta leik liðsins í Árósum á Evrópumóti kvenna.
Ísland er úr leik eftir tap gegn Rússlandi í dag 21:30 en Júlíus segir leikmenn Íslands hafa öðlast dýrmæta reynslu í frumraun sinni á stórmóti.