Liverpool 2:0 yfir gegn Arsenal

Peter Crouch er búinn að skora tvívegis gegn Arsenal.
Peter Crouch er búinn að skora tvívegis gegn Arsenal. Reuters

Liverpool er 2:0 yfir gegn Arsenal þegar búið er að flauta til hálfleik í leik liðanna á Anfield. Peter Crouch framherjinn stóri og stæðilegi er búinn að skora bæði mörk heimamanna. Það fyrra með skoti af stuttu færi á 4. mínútu og það síðara með glæsilegum skalla á 35. mínútu. Fyrir leikinn í dag er Arsenal með 55 stig í þriðja sæti en Liverpool 54 í fjórða sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert