Liverpool sigraði Auxerre í Sviss

Steven Gerrard kom Liverpool yfir gegn Auxerre.
Steven Gerrard kom Liverpool yfir gegn Auxerre. Reuters

Liverpool sigraði franska liðið Auxerre, 2:0, í æfingaleik sem fram fór í svissnesku borginni Freiburg í dag. Steven Gerrard og Daniel Agger skoruðu mörkin í daufum leik.

Gerrard kom Liverpool yfir með góðu vinstrifótarskoti í lok fyrri hálfleiks og Agger innsiglaði sigurinn um miðjan síðari hálfleik með skalla eftir hornspyrnu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert