Skurðlæknirinn segir Owen geta spilað landsleikina

Michael Owen fagnar eftir að hafa skorað gegn Rússlandi í …
Michael Owen fagnar eftir að hafa skorað gegn Rússlandi í síðasta mánuði. Reuters

Ulrike Muschaweck, þýskur skurðlæknir sem skar Michael Owen upp á dögunum, telur að hann eigi alla möguleika á að spila með enska landsliðinu í knattspyrnu gegn Eistlandi og Rússlandi í undankeppni Evrópumótsins 13. og 17. október.

Owen fór í aðgerð á magavöðva, til að koma í veg fyrir kviðslit og hefur sjálfur sagt að það væri hæpið að ná leikjunum. Sú þýska er á annarri skoðun.

„Eftir svona aðgerð á hann að vera kominn á fulla ferð eftir 10-12 daga, í mesta lagi 14 daga. Hann byrjar að æfa á mánudag eða þriðjudag og bætir við sig daglega, og eftir 8-10 daga verður hann orðinn alheill. Ég vona og býst við því að hann geti spilað með enska landsliðinu," sagði Ulrike Muschaweck við BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert