Lehmann fer ekki til Dortmund

Jens Lehmann.
Jens Lehmann. AP

Allt bendir til þess að þýski markvörðurinn Jens Lehmann verði áfram hjá Arsenal, en slitnað hefur upp úr samningaviðræðum hans og Dortmund, sem hafði áhuga á að fá hann.

Dortmund var ekki tilbúið að ganga að kröfum markvarðarins sem vildi fá 18 mánaða samning að andvirði 366 milljóna króna. Félagið vildi hins vegar gera styttri samning og var ekki heldur tilbúið að greiða jafn háa upphæð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert