Benjani fékk sér blund á flugvellinum

Benjani Mwaruwari gekk í raðir Manchester City í gær.
Benjani Mwaruwari gekk í raðir Manchester City í gær. Reuters

Ástæðan fyrir því að ekki tókst að ganga frá félagaskiptum Benjani frá Portsmouth til Manchester City áður en félagaskipta fresturinn rann út í síðustu viku var sú að Benjani sofnaði á flugvellinum í Portsmouth og missti á meðan af tveimur flugvélum til Manchester.

Benjani náði ekki að komast til Manchester í tæka tíð til að ganga frá félagaskiptunum og þau voru þar með í uppnámi en stjórn ensku úrvalsdeildarinnar lagði blessun sína yfir þau í gær þar sem þau voru það langt komin.

Benjani, sem hefur skorað 12 mörk fyrir Portsmouth á tímabilinu, mun væntanlega leika sinn fyrsta leik með Manchester City á sunnudaginn en þá sækir City granna sína í Manchester United heim.



 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert