Lampard með nýjan 5 ára samning við Chelsea

Frank Lampard hefur ákveðið að halda kyrru fyrir hjá Chelsea.
Frank Lampard hefur ákveðið að halda kyrru fyrir hjá Chelsea. Reuters

Chelsea tilkynnti nú rétt í þessu að Frank Lampard miðjumaðurinn snjalli hafi gert nýjan 5 ára samning við félagið. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Lampards hjá Chelsea og bæði í fyrra og í sumar hefur hann verið orðaður við félög á borð við Barcelona og Inter en samningur hans átti að renna út næsta sumar.

Lampard hefur verið í herbúðum Chelsea síðan 2001 en þangað kom hann frá West Ham.  Hann hefur gengt lykilhlutverki með Lundúnaliðinu undanfarin ár og hefur verið ótrúlega iðinn við að skora fyrir félagið en mörkin telja 110 talsins sem hann hefur skorað fyrir liðið, þar af 71 í 247 leikjum með því í úrvalsdeildinni.

„Ég vil ljúka ferli mínum hjá Chelsea. Þetta er eitthvað sem ég hef sagt marg oft og nú eftir að hafa skrifað undir samninginn er ég mjög ánægður. Ég get vonandi leikið stórt hlutverk á næstu fimm árum með félaginu,“ segir Lampard á vef Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert