Berbatov: Ekki langt þar til ég skora

Berbatov í baráttunni við þrjá varnarmenn Bolton í leiknum á …
Berbatov í baráttunni við þrjá varnarmenn Bolton í leiknum á Old Trafford í gær. Reuters

Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov hjá Manchester United er sannfærður um að ekki muni líða langur tími þar til hann kemst á markalistann hjá liðinu en Berbatov hefur ekki náð að finna netmöskvana síðan hann gekk í raðir liðsins frá Tottenham fyrir mánuði.

,,Mig langar mikið að skora en auðvitað eru stigin mikilvægust. Ég er ekkert orðinn stressaður yfir markaleysinu og ég sannfærður um að það muni ekki líða að löngu þar til ég skora fyrir liðið,“ segir Berbatov.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert