Pennant vill ekki fara frá Liverpool

Jermaine Pennant í leik með Liverpool.
Jermaine Pennant í leik með Liverpool. Reuters

Jermaine Pennant kantmaður í liði Liverpool hefur ekki áhuga á að fara til bikarmeistara Portsmouth en fyrr í dag komust félögin að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum.

,,Minn vilji er að halda kyrru fyrir hjá Liverpool og ég vonast til að svo verði. Ég vil ekki fara og er bara sáttur við að berjast fyrir því að vinna mér sæti í liðinu og vonandi fæ ég tækifæri til þess,“ sagði Pennant í kvöld en þessi 26 ára gamli leikmaður hefur fengið fá tækifæri hjá Rafael Benítez á tímabilinu.

Hann hefur leikið 81 leik með Liverpool frá því hann kom til þess frá Birmingham fyrir þremur árum en hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á þessu tímabili.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert