Benítez stólar á Gerrard og Torres

Rafael Benítez ásamt Fernando Torres.
Rafael Benítez ásamt Fernando Torres. Reuters

Rafael Benítez hefur trú að Fernando Torres og Steven Gerrard geti haldið titilvonum liðsins á lífi með því að leiða Liverpool til sigurs gegn Manchester United á Old Trafford á morgun. Báðir eru þeir komnir á fulla ferð eftir meiðsli og áttu stóran þátt í glæstum sigri liðsins á Real Madrid í vikunni.

,,Þeir eru okkur alltaf mjög mikilvægir. Ef við getum haldið þeim heilum og þeir spili sinn leik þá verður erfitt fyrir Manchester United að stöðva þá,“ sagði Benítez á vikulegum fréttamannafundi á Anfield í dag.

 ,,Ef við ætlum að vera með í baráttunni um titilinn þá verðum við að vinna og við liðið spilar með svipuðum hætti og það gerði á þriðjudaginn þá getum við unnið hvaða lið sem er,“ sagði Benítez en Liverpool er eins og Chelsea sjö stigum á eftir Manchester United sem á að auki leik til góða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert