Sagna ekki með Arsenal á Wembley

Bacary Sagna er veikur.
Bacary Sagna er veikur. Reuters

Franski bakvörðurinn Bacary Sagna verður ekki með Arsenal á morgun þegar liðið mætir Chelsea í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Wembley.

Sagna hefur ekki náð sér af veikindum en hann missti af leiknum gegn Villarreal í Meistaradeildinni vegna þeirra. Kieran Gibbs leysti Sagna af hólmi í leiknum á móti Villarreal en það skýrist ekki fyrr en á morgun hvort hann verði leikfær en meiðsli í nára eru að angra hann.

Þar sem varnarmennirnir William Gallas, Johan Djourou og Gael Clichy eru allir frá vegna meiðsla hefur Arsene Wenger ekki úr miklu að moða en líklegt er að Mikael Silvestre verði settur í stöðu vinstri bakvarðar og Alex Song leiki í stöðu miðvarðar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert