Bróðir Sir Alex hefur kortlagt lið Barcelona

Alex Ferguson lyftir Englandsbikarnum á loft á Old Trafford um …
Alex Ferguson lyftir Englandsbikarnum á loft á Old Trafford um síðustu helgi. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri nýkrýnda Englandsmeistara Manchester United hefur síðustu dagana verið á fullu að undirbúa sig fyrir átökin gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Róm á miðvikudaginn í næstu viku.


Ferguson og samstarfsmenn hans hafa eytt mörgum klukkutímum í að kryfja leiki Barcelona á myndbandi og þá hefur Martin, bróðir Alex Fergusons, dvalið síðustu vikur á Spáni þar sem hann hefur kortlagt leiki Spánarmeistaranna.

,,Ég hóf að beina athygli minni af leiknum í Róm fyrir tveimur vikum síðan. Við höfum skoðað marga leiki Barcelona af myndbandi og Martin hefur séð alla leiki liðsins frá því ljóst var að við færum í úrslitaleikinn,“ sagði Ferguson í samtali við Manchester United sjónvarpið.






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert