Welbeck tryggði United sigur

Nani í baráttu við tvo leikmenn Wolves á Old Trafford …
Nani í baráttu við tvo leikmenn Wolves á Old Trafford í kvöld. Reuters

Danny Welbeck tryggði Manchester United 1:0 sigur gegn Wolves en liðin áttust við í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu á Old Trafford í kvöld.

Welbeck skoraði markið eftir góða samvinnu við Michael Owen á 66. mínútu en United, sem á titil að verja, lék manni færri í klukktíma eftir að Brasilíumanninum Fabio var vikið af velli fyrir að fella sóknarmann Úlfanna sem var að sleppa einn í gegn.

Framlengja þarf leik Manchester City og Fulham en staðan eftir venjulegan leiktíma var, 1:1. Zoltan Gera kom Fulham yfir en Gareth Barry jafnaði fyrir Manchester-liðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert