Tom Cruise er í byrjunarliðinu

Carlos Vela og Aaron Ramsey eru í byrjunarliði Arsenal í …
Carlos Vela og Aaron Ramsey eru í byrjunarliði Arsenal í kvöld. Reuters

Hinn kornungi Tom Cruise fær tækifæri með Arsenal í kvöld þegar enska liðið sækir heim Olympiakos Pireus í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Viðureign liðanna hefst í grísku hafnarborginni Pireus klukkan 19.45.

Cruise er 18 ára gamall varnarmaður og leikur stöðu vinstri bakvarðar í leiknum í kvöld.

Arsenal hefur þegar tryggt sér öruggan sigur í H-riðli keppninnar en Olympiakos þarf jafntefli við að komast í 16-liða úrslitin. Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal stillir upp varaliði sínu í kvöld og það er þannig skipað:

Arsenal: Fabianski, Gilbert, Bartley, Silvestre, Cruise, Ramsey, Song Billong, Merida, Walcott, Wilshere, Vela.
Varamenn: Mannone, Coquelin, Eastmond, Ayling, Randall, Sunu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert