Eiður Smári sagður vilja snúa aftur til Englands

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Breska götublaðið The Sun greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen vilji yfirgefa Mónakó og freista gæfunnar í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Eiður er kominn út í kuldann hjá Mónakó en Guy Lacombe þjálfari liðsins hefur ekki verið ánægður með frammistöðu leikmannsins og valdi hann ekki í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Rennes í gærkvöld þar sem Mónakó fagnaði loks sigri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert