Wenger: Búin að vera góð vika

Arsene Wenger tekur jafnan virkan þátt í leikjum sinna manna.
Arsene Wenger tekur jafnan virkan þátt í leikjum sinna manna. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði eftir sigurinn Hull í kvöld að lið sitt hafi ekki verið upp á sitt besta en Arsenal sigraði Hull, 3:0, og hefur nú tapað færri stigum en meistarar Manchester United.

,,Ég viss að þetta yrði eftir leikinn þar sem við áttum tvo erfiða leiki í vikunni, gegn Liverpool og Burnley. Fyrir mér er sigurinn mikilvægastur,“ sagði Wenger eftir leikinn.

,,Við höfðum heppnina með okkur þegar Almunia varði vítaspyrnuna en eftir það fannst mér við verðskulda sigurinn. Þetta er búin að vera góð vika því við spiluðum tvo erfiða leiki, annan á útivelli og svo á móti Hull sem átti leik í miðri viku eins og við. Við erum klárlega með í toppbaráttunni. Þetta lið vill ná árangri og leikmenn verðskulda það.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert