Capello mættur til fundar við Terry

Fabio Capello og John Terry ræða málin á morgun.
Fabio Capello og John Terry ræða málin á morgun. Reuters

Fabio Capello landsliðseinvaldur Englendinga í knattspyrnu lenti á Heathrow flugvellinum í London í dag en hann var að koma frá Sviss þar sem hann hefur verið að jafna sig eftir aðgerð á hné. Capello mun eiga fund með landsliðsfyrirliðanum John Terry á morgun en Terry hefur verið mikið til umfjöllunar hjá enskum fjölmiðlum síðustu dagana eftir meint framhjáhald hans.

Hópur fréttamanna beið Capellos á flugvellinum en Ítalinn neitaði að ræða við þá að svo stöddu. Hávær krafa er um það á Englandi að Terry verði sviptur fyrirliðastöðunni en sjálfur er hann ekki tilbúinn til að láta fyrirliðabandið af hendi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert