Rooney langmarkahæstur

Wayne Rooney í baráttu við tvo varnarmenn Portsmouth á Old …
Wayne Rooney í baráttu við tvo varnarmenn Portsmouth á Old Trafford í gær. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United er langmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Rooney, sem skoraði eitt af af mörkum United í 5:0 sigri á Portsmouth í gær, hefur skorað 21 mark í deildinni og 23 í öllum keppnum.

Rooney opnaði markareikning Englandsmeistaranna gegn botnliði Portsmouth á Old Trafford í gær en Rooney hefur iðinn við kolann í leikjum United síðustu vikurnar.

Markahæstu leikmenn í úrvalsdeildinni eru:

21 - Wayne Rooney, Manchester United

15 - Jermain Defoe, Tottenham

15 - Didier Drogba, Chelsea

14 - Darren Bent, Sunderland

12 - Carlos Tévez, Manchester City

12 - Fernando Torres, Liverpool

11 - Cesc Fabregas, Arsenal

11 - Louis Saha, Everton

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert