Ferguson fékk Scholes ofan af því að hætta

Paul Scholes.
Paul Scholes. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hefur upplýst að hann hafi fengið Paul Scholes ofan af því að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið en miðjumaðurinn reyndi gerði á dögunum nýjan eins árs samning við félagið.

Scholes hefur níu sinnum orðið Englandsmeistari með Manchester United og hann hefur leikið stórt hlutverk með liðinu á síðari hluta tímabilsins og skoraði til að mynda sigurmarkið gegn Manchester City í uppbótartíma á dögunum.

,,Ég ræddi við Scholes en hann hafði gefið það í skyn að hann ætlaði að hætta eftir tímabilið. Ég sagði; Ég ákveð hvenær þú hættir. Sjáðu Paul, þú getur spilað, það er engin spurning um það. Getan er til staðar og það er engin hnignum í leik þínum,“ segir Ferguson í United tímaritinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert