Hart áfram á milli stanganna

Joe Hart.
Joe Hart. Reuters

Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City staðfesti í dag að Joe Hart muni verja mark liðsins annað kvöld þegar liðið leikur við Timisoara í umspili UEFA deildarinnar í knattspyrnu í Ungverjalandi annað kvöld.

Hart átti stórleik fyrir City um síðustu helgi þegar það gerði markalaust jafntefli við Tottenham en enski landsliðsmarkvörðurinn hefur slegið Shay Given út og vill írski landsliðsmaðurinn komast á lán til annars félags. Hann sættir sig ekki við að verma varamannabekkinn

Aleksandar Kolarov og Jerome Boateng geta ekki spilað vegna meiðsla sem Þeir urðu fyrir í leiknum við Tottenham en ítalski framherjinn Mario Balotelli verður í leikmannahópnum og gæti þar með spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert