Arsenal skellti Birmingham á St.Andrews

Robin Van Persie fagnar marki sínu ásamt with Alex Song …
Robin Van Persie fagnar marki sínu ásamt with Alex Song og Bacary Sagna. Reuters

Arsenal fagnaði öruggum 3:0 sigri gegn Birmingham en leik liðanna var að ljúka á St.Andrews. Strákarnir hans Arsene Wengers sýndu á köflum frábæra takta og þeir eru í þriðja sæti með 39 stig en Manchester liðin, United og City eru með 41 stig.

Robin van Persie skoraði fyrsta markið á 13. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu. Frakkinn Samir Nasri bætti við öðru á 58. mínútu, hans 13. mark á tímabilinu, og Roger Johnson varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 66. mínútu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert