Balotelli hefur lagt hart að sér

Brendan Rodgers og Mauricio Pochettino á hliðarlínunni í kvöld.
Brendan Rodgers og Mauricio Pochettino á hliðarlínunni í kvöld. AFP

Colin Pascoe, aðstoðarmaður Brendans Rodgers, sat fyrir svörum eftir 3:2 sigur Liverpool á Tottenham í kvöld en að sögn hans þurfti Rodgers að ná flugi.

„Tottenham-liðið hefur verið á miklu flugi og það voru tvö frábær lið sem mættust hér í kvöld í leik sem var algjörlega frábær,“ sagði Pascoe.

„Mario Balotelli hefur verið að leggja hart að sér á æfingum og síðustu vikur hefur hann verið veikur. Það var frábært að sjá hann skora sigurmarkið í kvöld. Steven Gerrard fann til afan í læri og þurfti að fara af velli. Það var mikilvægt að vinna í kvöld, þetta var frábær sigur og við verðskulduðum stigin þrjú,“ sagði Pascoe.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert