Portúgalski knattspyrnustjórinn José Mourinho nálgast Old Trafford hægt en örugglega. Samkvæmt heimildum Sky Sports hafa samningaviðræður í dag gengið vel.
Fullyrt er að búið sé að ganga frá þeim hluta samningsins sem snýr að kaupum og kjörum Mourinho og lengd samningsins. Hins vegar er ekki búið að semja um ímyndarrétt knattspyrnustjórans.
Ed Woodward, varaformaður Manchester United, og Jorge Mendes, umboðsmaður Mourinho, hafa fundað í allan dag og hafa þau fundahöld gengið vel.